A Treasured Time
23. ágúst 2009 klukkan 22:32 | Skrifað í Uncategorized | 3 UmmæliÉg hef alltaf haft áhuga á krosssaum en hef ekki saumað neitt í mörg ár, eða frá því að ég átti fyrsta barnið. Núna í sumarfríinu, í bústað á Þingeyri, fékk ég óstjórnlega löngun til að sauma og rauk til Ísafjarðar í búðina “Heitt á prjónunum” og keypti eina mynd með öllu.
Ég féll algjörlega fyrir þessari mynd. Hún sýnir jól í smábæ. Þessi mynd heitir ” A Treasured Time” og er frá
Dimensions, Gold Collection.
Hér að neðan er myndin eins og hún á að líta út í lokin og svo staðan á myndinn minni í dag..

Pakkinn keyptur á Ísafirði 4. ágúst 2009

Staðan 23.ágúst 2009
Halló..
22. ágúst 2009 klukkan 23:51 | Skrifað í Uncategorized | 2 UmmæliÉg gerði mér þessa síðu til að halda utan um fréttir af öllu því sem ég ætla að sauma í framtíðinni..
Þar sem ég virðist aftur vera smituð af saumabakteríunni ætla ég að reyna að vera svakalega dugleg að sauma. Sérstaklega þar sem ég er búin að plana næstu 7 verkefni…
Ég er reyndar bara byrjuð á einni mynd en er búin að skipuleggja næstu 6…
Ég ætla svo að reyna að setja inn myndir af herlegheitunum og stöðunni hverju sinni..
Gangi mér vel…
Kveðja, Margrét..
Bloggaðu hjá WordPress.com. | Theme: Pool by Borja Fernandez.
Entries and ummæli feeds.


